Leifur heppni í Hofsstaðaskóla
Námsefnið um Leif Eiríksson er lesið í 5. bekk í grunnskólum. Í Hofsstaðaskóla hafa nemendur sökkt sér niður í efnið að undanförnu.
Nemendurnir hafa ekki aðeins lesið um landkönnuðinn mikla heldur einnig farið í vettvangsferðir á Þjóðminjasafnið og skoðað landnámssýninguna hjá Minjasafni Reykjavíkur. Börnin hafa líka kynnt sér hvernig skip landnámsmanna litu út og búið til heilu listaverkin sem sýna landnámsmenn á leið til fjarlægra landa.
Á vef Hofsstaðaskóla er sagt frá verkefninu og þar eru fjölmargar myndir úr vettvangsferðunum og af vinnu barnanna.
Svona flott listaverk verða ekki til af sjálfu sér. Hér eru nokkrir áhugasamir nemendur að búa til mynd af skipi landnámsmanna.
Afrakstur vinnunnar er m.a. þessi glæsilega veggmynd.