Regnbogatré í Hofsstaðaskóla
Hofsstaðaskóli tekur þátt í evrópsku samstarfsverkefni (Comenius) næstu tvö árin sem nefnist „Rainbow Tree“ eða Regnbogatré. Í verkefninu taka einnig þátt skólar í Belgíu, Tyrklandi, Kýpur, Bretlandi , Rúmeníu, og Spáni.
Allir nemendur taka þátt
Verkefnið fjallar um tré og gildi þeirra frá ýmsum sjónarhornum. Töluverð áhersla verður á umhverfisfræðslu og náttúruvernd, mikið verður um skapandi viðfangsefni og leitast verður við að virkja alla nemendur skólans í verkefninu.
Gróðursett undir regnboga
Í upphafi verkefnisins gróðursetur hver skóli tré í nágrenni skólans. Tréð er áþreifanlegt tákn fyrir verkið og er hlúð að því og fylgst með vexti þess. Hofsstaðaskóli gróðursetti sitt Regnbogatré mánudaginn 3. október. Allir nemendur skólans voru viðstaddir athöfnina en nokkrir nemendur í 7. bekk fengu það hlutverk að koma trénu fyrir í reitnum og búa um það þar.
Svo skemmtilega vildi til að á meðan á athöfninni stóð birtist stór og fallegur regnbogi fyrir ofan skólann.
Fleiri myndir frá gróðursetningunni eru á vef Hofsstaðaskóla.
Stór og fallegur regnbogi birtist á himni á meðan Regnbogatréð var gróðursett.