30. sep. 2011

Sögustund í bókasafninu

Börn frá deildinni Birkisel á leikskólanum Hæðarbóli komu í heimsókn í Bókasafn Garðabæjar síðastliðinn fimmtudag. Börnin fluttu þulu með hreyfingum fyrir starfsfólk bókasafnsins og hlustuðu síðan á söguna um Skessuna sem leiddist, sem féll vel í kramið því þau hafa undanfarið verið að fræðast um tröllskessuna Gilitrutt.
  • Séð yfir Garðabæ

Börn frá deildinni Birkisel á leikskólanum  Hæðarbóli komu í heimsókn í Bókasafn Garðabæjar síðastliðinn fimmtudag.  Börnin fluttu þulu með hreyfingum fyrir starfsfólk bókasafnsins og hlustuðu síðan á söguna um Skessuna sem leiddist, sem féll vel í kramið því þau hafa undanfarið verið að fræðast um tröllskessuna Gilitrutt.  Einnig fengu börnin bækling frá bókasafninu með fróðleik og skemmtilegum myndum, þar sem þau gátu límt inn bókatré og bókaorma.

 

Áhuginn í andliti þeirra leyndi sér ekki þegar þau fengu að skoða hinn fjölbreytta bókakost safnsins og það vakti mikla gleði að mega velja nokkrar bækur til að taka með í leikskólann.  Bókasafn Garðabæjar býður öllum leikskólahópum að koma í lestrarhvetjandi sögu- og fræðslustundir sem einnig vekja athygli barnanna á öllu því skemmtilega og fróðlega efni og góðu aðstöðu sem bókasafnið hefur í boði fyrir yngstu bæjarbúana.