Fyrsti fundur eftir sumarfrí
Bæjarstjórn Garðabæjar kom saman til fundar fimmtudaginn 18. ágúst sl. á bæjarskrifstofum Garðabæjar. Þetta var fyrsti fundur bæjarstjórnar að loknu sumarfríi. Á fundum bæjarstjórnar eru teknar fyrir fundargerðir bæjarráðs og annarra nefnda bæjarins sem og fundargerðir ýmissa samstarfsnefnda. Í bæjarstjórn Garðabæjar sitja sjö bæjarfulltrúar. Á fundinum í gær var m.a. rætt um gang framkvæmda við byggingu leikskóla í Akrahverfi og yfirvofandi verkfall leikskólakennara.
Upptökur af fundum
Í vor var byrjað að hljóðrita fundi bæjarstjórnar og upptökur af fundunum eru aðgengilegar hér á heimasíðunni. Einnig er hægt að sjá fundargerðir bæjarstjórnar á heimasíðunni þar sem þær eru birtar daginn eftir fund. Sjá fundargerð frá fundinum 18. ágúst sl. hér.
Fundir bæjarstjórnar eru haldnir fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar í sal bæjarstjórnar á bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7. Fundirnir hefjast kl. 17.00 og eru öllum opnir.
Frá vinstri: Steinþór Einarsson, Ragný Þóra Guðjohnsen, Sigurður Guðmundsson, Stefán Snær Konráðsson, Páll Hilmarsson og Erling Ásgeirsson.
Steinþór Einarsson bæjarfulltrúi