28. júl. 2011

Sundlist eða listsund ?

Þeim sem heimsótt hafa sundlaugina í Ásgarði í þessari viku hefur mögulega brugðið í brún en á bökkum sundlaugarinnar er málverk í stöðugri vinnslu.
  • Séð yfir Garðabæ

Þeim sem  heimsótt hafa sundlaugina í Ásgarði í  þessari viku hefur mögulega brugðið í brún en á bökkum sundlaugarinnar er  málverk í stöðugri vinnslu.  Um er að ræða skemmtilegt samstarfsverkefni  Garðabæjar og listamannsins Birgis Rafns Friðrikssonar.

 

Verkið hófst mánudaginn 25. júlí sl. en þá stóð Birgir fyrir framan auðan flöt 150 x 300 cm og hófst handa.

 

Sundlaugargestum gefst kostur á að fylgjast  með verkinu í þróun á næstu vikum en áætluð verklok eru undir  lok ágúst.

Móðir  náttúra  mun þá taka við þar sem verkinu verður komið  fyrir við sundlaugarbakkann þar sem það mun hanga næstu 2 árin.

 

Birgir mun nota hvert tækifæri sem gefst vegna veðurs til að vinna við verkið á næstu vikum og verður fróðlegt fyrir gesti sundlaugarinnar að fylgjast með þróun þess allt til loka.

Á fésbókarsíðu Birgis er hægt að skoða myndir af verkinu..

 

Málverk við sundlaugina í Ásgarði

 

Málverk við sundlaugina í Ásgarði