Fróðleikur í Ásgarði
Nú gefst gestum Ásgarðs kostur á að setjast niður í anddyri íþróttamiðstöðvarinnar og glugga í mikið safn bóka um íþróttir, heilsu og hollustu.
Nú gefst gestum Ásgarðs kostur á að setjast niður í anddyri íþróttamiðstöðvarinnar og glugga í mikið safn bóka um íþróttir, heilsu og hollustu. Garðabæingar geta þá komið í sund, keypt sér heilsudrykk, sest niður og lesið góða bók.
Áhugasömum gefst einnig kostur á að fá lánaðar bækur endurgjaldslaust en bækurnar eru þá skráðar niður í afgreiðslu.
Tilgangurinn með þessu framtaki er að gæða anddyri Ásgarðs lífi og auka fjölbreytileika þjónustunnar við viðskiptavini.
Hér er að finna bókalista.