10. mar. 2014

Leiðbeiningar um umhirðu trjágróðurs

Nú líður að þeim tíma sem hentar best til klippinga á trjágróðri.
  • Séð yfir Garðabæ

Seinni hluti vetrar og byrjun vors er yfirleitt talin henta vel til klippinga, m.a. þar sem greinabygging lauffellandi trjáa- og runnaplantna er vel sýnileg.

Segja má að klippingar séu flestum garðtrjám og runnum nauðsynlegar til að þeir þrífist sem best. Greinar sem eru dauðar, sjúkar eða hafa óæskilega vaxtarstefnu þarf að fjarlægja.
Einnig getur þurft að formklippa tré og runna í samræmi við ræktunartilgang og það rými sem er til staðar. Tré og runna við lóðarmörk, t.d. við gangstéttar þarf að klippa og forma þannig að gangandi komist leiðar sinnar og þjónustutæki geti ekið um hindrunarlaust.

Garðyrkjustjóri Garðabæjar gerir árlega úttekt á trjágróðri við lóðarmörk. Úttektin er gerð til að fyrirbyggja slys, tjón og ýmis óþægindi sem fylgt getur því að gróður vaxi út fyrir rými sitt.

Garðeigendur og umsjónarmenn opinna svæða þurfa einnig að hafa í huga að valda nágrönnum sínum ekki óþægindum vegna gróðurs á lóðarmörkum.

Í meðfylgjandi grein er fjallað nánar um umhirðu trjágróðurs og trjáklippingar.

Umhirða trjágróðurs