Nýr Minn Garðabær
Nýr íbúavefur, Minn Garðabær, verður opnaður á allra næstu dögum. Ný lykilorð hafa þegar verið send öllum Garðbæingum í heimabankann
Nýr íbúavefur, Minn Garðabær, verður opnaður á allra næstu dögum. Til að skrá sinn inn á nýja vefinn þarf nýtt lykilorð. Ný lykilorð hafa þegar verið send öllum Garðbæingum í heimabankann.
Þeir sem ekki hafa aðgang að heimabanka geta sótt nýtt lykilorð í þjónustuver Garðabæjar í Ráðhúsinu, Garðatorgi 7.
Unnið að útfærslu hvatapeninga
Enn er unnið að tæknilegri útfærslu hvatapeningakerfisins í nýrri íbúagátt.
Hægt er að koma með kvittanir og fá endurgreitt en ekki verður hægt að greiða hvatapeninga beint inn á greiðsluseðla fyrr en eftir páska.
Eindagi greiðsluseðla frá Skátafélaginu Vífli hefur verið fluttur til 28. apríl af þessum sökum.
Tengist nýju skjalavistunarkerfi
Ný íbúagátt er tekin í notkun í tengslum við innleiðingu á nýju skjalavistunarkerfi. Umsóknir og erindi sem send eru frá gáttinni flæða beint inn í nýja skjalakerfið sem tryggir örugga meðhöndlun allra skjala.