Frábær árangur nemenda í Garðabæ
Nemendur í Garðabæ náðu einna bestum árangri á landsvísu í PISA könnuninni sem lögð var fyrir 10. bekk á Íslandi í mars 2009. Árangur nemenda Garðabæjar var marktækt betri en meðaltal Íslands í öllum þáttum þ.e. lesskilningi, læsi á stærðfræði og læsi í náttúrufræði og er sambærilegur við árangur nemenda í Finnlandi sem oftast hafa komið best út úr þessari könnun.
Sambærilegur árangur og í Finnlandi
Meginniðurstaða PISA 2009 er að Ísland hækkar frá síðustu prófum og nálgast það ár sem útkoman var best þ.e. árið 2000. Fyrir Garðabæ er árangurinn árið 2009 sá besti frá upphafi og marktækt betri en árið 2006. Þannig er árangur Garðabæjar einn sá besti á landsvísu og marktækt betri en meðaltal Íslands í öllum þáttum þ.e. lesskilningi, læsi á stærðfræði og læsi í náttúrufræði.
Nánari útkomu Garðabæjar í samanburði við Ísland og löndin í OECD sem Ísland ber sig gjarnan saman við (Evrópuríkin og þróuð ríki eins og Bandaríki Norður-Ameríku, Ástraílu o. fl.) má sjá í töflunni hér fyrir neðan.
Það má geta þess að væri Garðabær ríki eða land þá væri frammmistaða nemendanna sem voru í 10. bekk vorið 2009 sambærileg árangri landa eins og Finnlands í lesskilningi, læsi á stærðfræði og læsi á náttúrufræði. Þetta verður að teljast frábær árangur hjá þessum árgangi í Garðabæ og er þessum nemendum , kennurum í grunnskólum Garðabæjar og foreldrum til mikils sóma.
Í morgunútvarpi Rásar 2 28. mars sl. var rætt við Almar Halldórsson, verkefnisstjóra PISA um góðan árangur Garðaskóla í könnuninni.
Hægt er að hlusta á viðtalið hér á vef RUV.
Víðtæk og nákvæm rannsókn
PISA eða Programme for International Student Assessment er alþjóðleg könnun á þekkingu og hæfni 15 ára nemenda, sem endurtekin er á þriggja ára fresti. Þar er metið hve vel 15 ára ungmenni eru undirbúin fyrir þátttöku í nútímasamfélagi við lok skyldunáms. PISA er víðtæk og nákvæm rannsókn þar sem lesskilningur og læsi nemenda er metið og að auki aflað bakgrunnsupplýsinga um nemendur og fjölskyldur þeirra sem hjálpar til við að útskýra ólíka námsfærni. Rannsóknin er afrakstur samvinnu á vegum Efnahags‐ og framfarastofnunarinnar OECD og byggir á bestu mögulegum aðferðum til þess að tryggja réttmætan samanburð á frammistöðu í mismunandi löndum og á mismunandi menningarsvæðum. Rannsóknin beinist að því að fylgjast með og meta frammistöðu 15 ára nemenda við lok grunnskólans í nokkrum lykilgreinum, sem eru lestur, stærðfræði og náttúrufræði.
Rannsóknin metur aðra þætti skólagöngunnar en námsframvindu og hefur m.a. verið lögð áhersla á þrautalausnir, námsvenjur, skólaumhverfi og lestrarvenjur. Við 15 ára aldurinn, eða við lok 10. bekkjar á Íslandi, er frammistaða nemenda í þessum lykilgreinum nokkuð góður mælikvarði á það hvernig skólakerfinu tekst til við að búa nemendur undir áframhaldandi nám og störf. Það hefur sýnt sig að þær þjóðir sem standa sig best í alþjóðlegum samanburðarrannsóknum af þessu tagi eru jafnframt þær þjóðir þar sem meirihluti þegnanna virðist hafa góð tækifæri til þess að lifa innihaldsríku lífi. Því eru rannsóknir af þessu tagi mikilvægar fyrir allar þjóðir sem taka þátt í þeim. Alls tóku 65 lönd þátt í PISA 2009, OECD löndin 33 auk 32 landa utan OECD.
PISA hefur verið lagt fyrir á Íslandi á þriggja ára fresti frá 2000. Niðurstöður Íslands fyrir PISA 2009 voru kynntar í desmber sl. og fengu einstök sveitarfélög kynningu um mánaðamótin janúar/febrúar.
Niðurstöður PISA könnunar í 10. bekk (15 ára nemendur)
Vor 2000
Vor 2003
Vor 2006
Vor 2009
Þátttaka í Garðabæ
88%
82%
81%
79%
Lesskilningur
meðaleinkunn: OECD
500
500
500
494
meðaleinkunn: Ísland
507
492
486
500
meðaleinkunn : Garðabær
516
499
472
544
* 95% bilkvarði Garðabæjar
318-714
313-686
273-672
384-705
munur á hæst og lægsta
396
373
400
321
Læsi á stærðfræði
meðaleinkunn: OECD
500
500
496
meðaleinkunn: Ísland
515
507
507
meðaleinkunn : Garðabær
524
507
560
* 95% bilkvarði Garðabæjar
357-692
324-690
412-708
munur á hæst og lægsta
335
366
296
Læsi á náttúrufræði
meðaleinkunn: OECD
500
501
meðaleinkunn: Ísland
491
498
meðaleinkunn : Garðabær
493
535
* 95% bilkvarði Garðabæjar
297-690
377-692
munur á hæst og lægsta
392
315
* 95%bilkvarði fyrir Garðaskóla er bilið milli 2,5% lægstu einkunnar og 2,5% hæstu einkunnar