Sungið fyrir starfsmenn
Að venju var líf og fjör á Öskudaginn og mörg börn komu í heimsókn í þjónustuver Garðabæjar í tilefni dagsins. Þar sungu börnin vel valin lög og fengu góðgæti að launum.
Að venju var líf og fjör á Öskudaginn og mörg börn komu í heimsókn í þjónustuver Garðabæjar í tilefni dagsins. Þar sungu börnin vel valin lög og fengu góðgæti að launum. Í skólum bæjarins var mikið fjör og allir uppáklæddir í búningum. Á heimasíðum skólanna má sjá skemmtilegar myndasyrpur. Hér má sjá tengla inn á heimasíður skólanna.