3. des. 2010

Álögur á íbúa áfram lágar

Álögur á íbúa í Garðabæ verða áfram lágar á árinu 2011, skv. frumvarpi að fjárhagsáætlun bæjarins sem lagt var fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í gær.
  • Séð yfir Garðabæ

Álögur á íbúa í Garðabæ verða áfram lágar á árinu 2011, skv. frumvarpi að fjárhagsáætlun bæjarins sem lagt var fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í gær. Útsvar verður óbreytt, eða 12,46%, sem er með því lægsta sem gerist hjá íslenskum sveitarfélögum. Gert er ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 165 mkr.

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2011 ber með sér sterka fjárhagsstöðu bæjarins. Staðinn verður vörður um núverandi starfsemi á fjölskyldusviði svo og í fræðslu-, íþrótta- og æskulýðsmálum eins og kostur er. Framangreindir málaflokkar, sem varið er til samtals um 80% af skattekjunum, verða ekki fyrir niðurskurði í fjárframlögum á milli áranna 2010 og 2011.

Skuldir greiddar niður


Garðabær nýtur þess í ríkum mæli að skuldir og skuldbindingar eru hóflegar. Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir því að langtímaskuldir verða greiddar niður um tæplega 400 millj. á árinu 2011 og að framkvæmdir á árinu, fyrir allt að 580 millj. kr., verði fjármagnaðar án lántöku. Stærstu framkvæmdir ársins eru bygging leikskóla í Akrahverfi í Garðabæ og bygging hjúkrunarheimilis á Sjálandi.

Útgjöld til félagsþjónustu hækka

Útgjöld til félagsþjónustu hækka um 4,9% frá árinu 2010. Liðir eins og fjárhagsaðstoð, þjónusta við aldraða og húsaleigubætur eru hækkaðir til að mæta aðstæðum í samfélaginu. Einnig hækkar rekstrarkostnaður Jónshúss vegna góðrar aðsóknar eldri borgara og þátttöku í því starfi sem þar er boðið upp á.


Garðabær mun áfram kappkosta að veita íbúum framúrskarandi þjónustu. Álögum á bæjarbúa er mjög stillt í hóf, útsvar lágt og gjaldskrárhækkanir óverulegar. Gert er ráð fyrir að samdrætti í tekjum verði mætt með sparnaði og hagræðingu í rekstri stofnana. Því er verulega komið til móts við íbúa í erfiðu árferði.

Á meðal helstu forsendna frumvarpsins má nefna:

  • Að hlutfall veltufjár frá rekstri verði hærra en sem nemur 10% af tekjum.
  • Að álagningarhlutfall fasteignaskatta hækki til að mæta lækkun fasteignamats um rúmlega 11%
  • Að leikskólagjöld hækki ekki. Matarverð leikskóla hækkar hinsvegar til að koma til móts við verðhækkanir síðustu ára.
  • Að reglur vegna lækkunar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega tryggi að tekjulágir eldri borgarar njóti afsláttar af fasteignaskatti og holræsagjöldum.
  • Að haldið verði áfram að greiða hvatapeninga vegna þátttöku barna og ungmenna í tómstundastarfi og reglur rýmkaðar til að 5 ára börn eigi kost á greiðslum vegna tómstunda sinna.
  • Að þeim aðhaldsaðgerðum sem hrint var í framkvæmd á árinu 2009 í grunn og leikskólum og á fleiri sviðum verði framhaldið á árinu 2011.
  • Að áfram verði gætt ítrasta hagræðis í rekstri og gætt að hagkvæmni í öllum innkaupum.
  • Að Garðabær verði áfram fyrirmyndarsveitarfélag hvað varðar fjármál og rekstur.

Frumvarp að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2011

Greinargerð með frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2011