24. nóv. 2010

Jóladagskrá á Garðatorgi

Laugardaginn 27. nóvember nk. verða ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi. Jólatréð er gjöf frá Asker, vinabæ Garðabæjar í Noregi. Athöfnin á laugardag hefst rétt fyrir kl. 16 á Garðatorgi í miðbæjargarðinum.
  • Séð yfir Garðabæ

 

Laugardaginn 27. nóvember nk. verða ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi.  Jólatréð er gjöf frá Asker, vinabæ Garðabæjar í Noregi, og þetta er í 41. sinn sem Garðbæingar fá þessa vinasendingu þaðan. 

 

Athöfnin á laugardag hefst rétt fyrir kl. 16 á Garðatorgi í miðbæjargarðinum. Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar leikur fyrir gesti og Katrín Káradóttir formaður Norræna félagsins í Garðabæ, býður gesti velkomna. Sendiherra Noregs á Íslandi Dag Vernø Holter afhendir tréð fyrir hönd Asker og Áslaug Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar, veitir trénu viðtöku. Skólabörn úr Sjálandsskóla syngja nokkur lög fyrir viðstadda og að lokum koma jólasveinar til byggða og flytja jólalög.  Sjá nánar um dagskrána hér í dagbókinni.

 

Barnaleikrit og myndlistarsýning

Ýmislegt verður einnig um að vera fyrr um daginn í miðbæ Garðabæjar.  Að venju er leiksýning í Bókasafni Garðabæjar,  kl. 13.30 verður barnaleikritið ,,Pönnukakan hennar Grýlu“ sýnt.  Leiksýningin verður haldin á efri hæð safnsins að Garðatorgi 7.  Í listasal Garðabæjar opnar Anna G. Torfadóttir myndlistarsýningu sem verður opin frá 14-17. Aðgangur er ókeypis á listsýninguna og um kl. 15.30 verður boðið upp á tónlistaratriði í listasalnum sem er staðsettur á hæðinni fyrir ofan bókasafnið. 

 

Jólamarkaður á Garðatorgi - handverksmarkaður og listaverkamarkaður


Í göngugötunni á Garðatorgi verður haldin jólamarkaður frá kl. 11-18.  Á markaðnum verður hægt að kaupa handverk og nýjar vörur.  Það eru rekstraraðilar á Garðatorgi sem standa að handverksmarkaðnum og á hverjum laugardegi fram að jólum verður haldin jólamarkaður frá 11-16.  Á jólamarkaðnum verða einnig ýmsar menningaruppákomur og kl. 13 syngur Sönglist Álftanessskóla og kl. 15 syngur Kvennakór Garðabæjar fyrir gesti og gangandi.

 

Félagið Gróska sem eru samtök myndlistarmanna og áhugafólks um myndlist í Garðabæ og á Álftanesi ætlar að halda listaverkamarkað í gamla Hagkaupshúsinu á Garðatorgi þennan sama dag.  Einnig eru fleiri verslanir og gallerí með opið hús laugardaginn 27. nóvember á Garðatorginu.

 

Allir eru velkomnir á Garðatorgið á laugardaginn!

 


Starfsmenn þjónustumiðstöðvar Garðabæjar fara víðs vegar um bæinn þessa dagana til að setja upp jólatré og skreytingar.