Yngsti bæjarfulltrúinn
Bæjarstjórn Garðabæjar kom saman til fundar fimmtudaginn 2. september sl. Kristín Jónsdóttir varabæjarfulltrúi sat sinn fyrsta bæjarstjórnarfund og er hún yngsti bæjarfulltrúi sem hefur setið fund í bæjarstjórn Garðabæjar.
Bæjarstjórn Garðabæjar kom saman til fundar fimmtudaginn 2. september sl. Kristín Jónsdóttir varabæjarfulltrúi sat sinn fyrsta bæjarstjórnarfund og er hún yngsti bæjarfulltrúi sem hefur setið fund í bæjarstjórn Garðabæjar. Kristín varð 21 árs gömul 22. ágúst sl.
Bæjarstjórn Garðabæjar kemur saman til fundar fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar. Fundirnir eru haldnir í ráðhúsi Garðabæjar að Garðatorgi 7 og eru öllum opnir. Hér á heimasíðunni má sjá nánari upplýsingar um bæjarstjórn Garðabæjar.
Á myndinni frá vinstri: Páll Hilmarsson, Kristín Jónsdóttir.