21. jún. 2010

Útvarp Garðabær hefur göngu sína á ný

Útvarp Garðabær 103.7 fer í loftið í kvöld klukkan 18:00
  • Séð yfir Garðabæ

Í vikunni mun Garðabær halda uppteknum hætti frá því síðasta sumar og starfrækja útvarpsstöð í viku. Fjölmörg ungmenni úr Garðabæ koma að verkefninu með fjölbreytta útvarpsþætti.

 

Útsending hefst kl 18:00 í kvöld og lýkur sunnudaginn 27. júní.

 

Hægt verður að hlusta á útvarpstíðninni FM 103. Einnig verður hægt að hlusta á í gegnum netið á slóðinni www.radio.is/stream2.

 

Umsjónarmaður útvarps Garðabæjar er Sigurbjörn Ingimundarson .