21. maí 2010

Hönnunarsafnið opnað

Hönnunarsafn Íslands verður opnað að Garðatorgi 1, í Garðabæ þann 27. maí, með sýningu sem ber heitið “Úr hafi til hönnunar”. Á sýningunni gefst kostur á að skoða fjölbreytt úrval gripa úr roði og fiskleðri eftir íslenska og erlenda hönnuði.
  • Séð yfir Garðabæ

Hönnunarsafn Íslands verður opnað að Garðatorgi 1, þann 27. maí, með sýningu sem ber heitið “Úr hafi til hönnunar”. Á sýningunni gefst kostur á að skoða fjölbreytt úrval gripa úr roði og fiskleðri eftir íslenska og erlenda hönnuði. Að auki verður til sýnis úrval úr eigu safnsins sem varpar ljósi á söfnunarsvið þess. Frá og með 28. maí verður safnið opið almenningi, alla daga nema mánudaga kl. 12-17.

Heimsfrægir hönnuðir

Munirnir á  opnunarsýningu safnsins koma víða að og eru fjölbreyttir; skór, stólar, töskur, útivistarfatnaður, skálar, kjólar, bækur og skartgripir ásamt fleiru. Nokkrir heimsfrægir hönnuðir og fyrirtæki úr tískuheiminum eiga muni á sýningunni, þar á meðal eru Donna Karan og Christian Dior. Margir íslenskir hönnuðir og listhandverksfólk hefur notað roð og fiskleður í áraraðir, má þar nefna Eggert feldskera, Arndísi Jóhannsdóttur í Kirsuberjatrénu, fatahönnuðinn Steinunni Sigurðadóttur og textílhönnuðinn Önnu Gunnarsdóttur á Akureyri. Verk þeirra og fjölda annarra íslenskra og erlendra hönnuða njóta sín vel í nýjum og glæsilegum salarkynnum Hönnunarsafns Íslands.

Áhersla er lögð á fræðslugildi sýningarinnar og í stuttu myndskeiði gefst gestum tækifæri til þess að fræðast um verkun roðsins sem unnið er hér á landi í verksmiðju Sjávarleðurs á Sauðárkróki.

Sýningarstjóri er Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands en hönnun sýningarinnar er í höndum Sruli Recht Studio.

Á sama tíma verður verslunin Kraum opnuð í anddyri safnsins með íslenskri hönnun.

Vefur Hönnunarsafns Íslands