11. maí 2010

Fjögur framboð í Garðabæ

Fjögur framboð bjóða fram í Garðabæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem haldnar verða 29. maí. Frestur til að skila inn framboðslistum rann út laugardaginn 8. maí kl. 12.
  • Séð yfir Garðabæ

Fjögur framboð bjóða fram í Garðabæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem haldnar verða 29. maí. Frestur til að skila inn framboðslistum rann út laugardaginn 8. maí kl. 12.

 

Framboðin eru eftirfarandi:

B-listi Framsóknarflokks

D-listi Sjálfstæðisflokks

M-listi Fólksins í bænum

S-listi Samfylkingar.

 

Auglýsing frá yfirkjörstjórn um framboðslistana.

 

Upplýsingar um framboðin eru einnig á svæði um Garðabæ á vefnum www.kosning.is