Skíðagöngubraut á GKG
Skíðagöngubraut hefur verið troðin á Vífilsstaðavelli, golfvelli GKG og er hún opin bæði félögum í GKG og öðru skíðafólki
Skíðagöngubraut hefur verið troðin á Vífilsstaðavelli, golfvelli GKG og er hún opin bæði félögum í GKG og öðru skíðafólki.
Brautin hefst við áhaldahúsið og liggur um dalinn. Best er að leggja bílum við áhaldahúsið og hefja göngu þaðan.
Vallarstjóri hjá GKG biður þá sem ganga á skíðum að fylgja brautinni og ganga ekki annars staðar s.s yfir flatir og teiga.