23. jan. 2014

Evrópska keðjan í Flataskóla í fjórða sinn

Fjórði bekkur í Flataskóla tekur nú þátt í eTwinning verkefninu ECR eða Evrópsku keðjunni í fjórða sinn.
  • Séð yfir Garðabæ

Fjórði bekkur í Flataskóla tekur nú þátt í eTwinning verkefninu ECR eða Evrópsku keðjunni í fjórða sinn. 

Verkefnið felst í því að útbúa kynningu/myndband með nemendum sem taka þátt og setja það á sameiginlega bloggsíðu. Nemendur og kennarar vinna síðan í sameiningu að því að búa til frumlega og skemmtilega keðju úr margvíslegu efni þar sem markmiðið er að láta upprunalega kraftinn haldast út alla keðjuna sem getur verið ansi erfitt. Hægt er að lesa um verkefnið hér á vef Flataskóla og sjá hvernig tekist hefur til. 

Einnig er keppni í gangi um hversu oft myndbandið er skoðað. Þeir sem vilja styðja Flataskóla í keppninni eru því hvattir til að taka sér örfáar mínútur og horfa á frábæran afrakstur verkefnisins. 

Fleiri myndir er hægt að skoða í myndasafni skólans.

Styðjið Flataskóla með því að horfa á myndbandið.