15. feb. 2010

Frábær Safnanótt

Bókasafn Garðabæjar tók þátt í Safnanótt í fyrsta sinn föstudagskvöldið 12. febrúar sl. Sú nýjung að halda Safnanótt um allt höfuðborgarsvæðið gafst vel og það voru margir sem lögðu leið sína á söfn þetta kvöld. Tæplega 10.000 manns tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá Safnanætur og nutu 150 viðburða á þeim 35 söfnum sem tóku þátt.
  • Séð yfir Garðabæ

Í Bókasafni Garðabæjar var hægt að hlusta á Ragnheiði Traustadóttur fornleifafræðing segja frá rannsókn sinni á fornminjum að Hofsstöðum í Garðabæ. Um 30 manns hlustuðu með áhuga á frásögn Ragnheiðar og að fyrirlestri loknum bauðst gestum að ganga upp að Hofsstöðum og skoða minjagarðinn sem er við Kirkjulund.

Ragnheiður Traustadóttir fornleifafræðingur útskýrir hvar skálinn á Hofsstöðum var staðsettur.

Safngestum fjölgaði nokkuð þegar leið á kvöldið og nálægt 70 manns voru mætt til að hlusta á Ragnheiði Gröndal söngkonu flytja íslensk vögguljóð við gítarundirleik Guðmundar Péturssonar.  Sannkölluð kaffihúsastemning var ríkjandi á bókasafninu þetta kvöld og boðið var upp á kaffi og meðlæti fyrir gesti og gangandi.

Sjá einnig heimasíðu Safnanætur, www.safnanott.is.