15. feb. 2010

Garðabær komst áfram

Lið Garðabæjar keppti í 2. umferð í spurningakeppni Sjónvarpsins Útsvari föstudagskvöldið 12. febrúar sl. Viðureignin var æsispennandi en svo fór að lokum að lið Garðabæjar bar sigur úr býtum.
  • Séð yfir Garðabæ

Lið Garðabæjar keppti í 2. umferð í spurningakeppni Sjónvarpsins Útsvari föstudagskvöldið 12. febrúar.  Andstæðingarnir að þessu sinni voru úr Fjarðabyggð. Viðureignin var æsispennandi en svo fór að lokum að lið Garðabæjar bar sigur úr býtum.  Lokatölur kvöldsins voru 73-94 og lið Garðabæjar er síðasta liðið sem kemst áfram í 3. umferð.



Átta lið eru eftir í 3. umferð sem hefst strax á föstudaginn.  Lið Garðabæjar keppir næst við Álftanes föstudagskvöldið 5. mars nk.  Í liði Garðabæjar eru Elías Karl Guðmundsson, Ólöf Ýrr Atladóttir og Vilhjálmur Bjarnason. Sjá nánari upplýsingar um spurningakeppnina Útsvar á heimasíðu Sjónvarpsins, http://www.ruv.is/utsvar/