12. feb. 2010

Kisudagar í bókasafninu

Í vikunni voru haldnir kisudagar í Bókasafni Garðabæjar. Skólahópum leikskólanna hefur sérstaklega verið boðið að koma í bókasafnið og taka þátt í kisudögum.
  • Séð yfir Garðabæ

Í vikunni voru haldnir kisudagar í Bókasafni Garðabæjar. Anna Ingólfsdóttir rithöfundur og jógakennari kom og las úr ný útkominni bók sinni Mjallhvítur. Mjallhvítur er þrífættur kisi sem Anna á, en hann missti fót í slysi fyrir mörgum árum.

 

Skólahópum  leikskólanna var boðið að koma í bókasafnið og taka þátt í kisudögum. Eins og sjá má á myndum voru börnin mjög áhugasöm að hlusta og ekki spillti fyrir að Mjallhvítur kom líka í heimsókn í eigin persónu. Það er heldur ekki á hverjum degi sem þeim gefst kostur á að berja augum þrífættan kött !