Lífshlaupið sett í Sjálandsskóla
Margir góðir gestu sóttu Sjálandsskóla heim í morgun þegar Lífshlaupið var sett þar. Þetta er í þriðja sinn sem blásið er til Lífshlaupsins og þar sem nemendur og starfsfólk Sjálandsskóla hafa staðið sig vel í því tvö sl. ár var ákveðið að setningin færi í þetta sinn fram í skólanum.
Kepptu i þrautabraut
Daníel Breki Johnsen, 9 ára nemandi í Sjálandsskóla, bauð gesti velkomna. Að því loknu fluttu ávörp þau; Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra. Þau kepptu síðan ásamt Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, Margréti Björnsdóttur, forstjóra Lýðheilsustöðvar, Hafsteini Pálssyni formanni almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Helga Grímssyni skólastjóra Sjálandsskóla og 6 nemendum úr Sjálandsskóla í skemmtilegri þraut í anda Skólahreystis undir stjórn Andrésar Guðmundssonar. Aðrir nemendur fengu síðan að spreyta sig í þrautabrautinni.
Allir hvattir til að taka þátt
Lífshlaupið er fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ og er tilgangur þess er að hvetja landsmenn til að huga að daglegri hreyfingu sinni og hreyfa sig í samræmi við ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um hreyfingu. Allir geta tekið þátt í Lífshlaupinu en hægt er að velja um þrjár leiðir. Einstaklingskeppni fyrir 16 ára og eldri, vinnustaðakeppni og hvatningarverkefni fyrir grunnskóla sem 15 ára og yngri geta tekið þátt í.
Fleiri myndir frá athöfninni eru á vef Sjálandsskóla.
Upplýsingar um Lífshlaupið eru á vef þess, www.lifshlaup.is en þar kemur m.a. fram að nú, 3. febrúar, hafa 666 lið frá 274 vinnustöðum og 191 bekkur frá 29 grunnskólum skráð sig til leiks.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra ávörpuðu gesti við setningu Lífshlaupsins
Helgi Grímsson, skólastjóri Sjálandsskóla tók við Lífshlaupsfána frá Ólafi Rafnssyni, forseta ÍSÍ.
Keppni í þrautabraut að hefjast
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri og Helgi Grímsson skólastjóri sýna hæfileika sína í sippi
Nemendur Sjálandsskóla reyndu sig líka í þrautabrautinni
Einbeitt í þrautabraut