17. des. 2009

Götuljósin loga lengur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, fór þess á leit við Orkuveitu Reykjavíkur í morgun að götulýsing í Garðabæ yrði færð aftur í fyrra horf
  • Séð yfir Garðabæ

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, fór þess á leit við Orkuveitu Reykjavíkur í morgun að götulýsing í Garðabæ yrði færð aftur í fyrra horf. Orkuveitan hefur þegar brugðist við og því loga götuljósin lengur í Garðabæ frá deginum í dag. Orkurveitan hóf tilraun í haust, að kröfu Reykjavíkurborgar, sem hafði í för með sér sér styttri lýsingartíma en verið hefur á veturna.


Í ágúst hóf Orkuveita Reykjavíkur tilraunaverkefni um breytta lýsingu sem fól í sér að viðmiðun við dagsbirtuna var breytt úr 50 lux í 20 lux, sem er það viðmið sem tíðkast m.a. í Noregi. Það þýðir að jafnaði að það slökknar fyrr á götuljósunum á morgnana og kviknar seinna á þeim á kvöldin. Þessi tilraun var gerð að kröfu Reykjavíkurborgar. Upphaflega átti hún að standa til 1. nóvember en Reykjavíkurborg ákvað að framlengja hana til 1. júni 2010.


Gunnar Einarsson sendi Orkuveitunni erindi í morgun þar sem hann fór fram á að götulýsing í Garðabæ yrði strax færð í fyrra horf. Hann segir í þessu samhengi að öryggi vegfarenda vegi þyngra en hugsanlegur sparnaður. „Garðabær vill tryggja íbúum sínum þá öryggislýsingu sem við erum vön og höfum alist upp við. Ég tel ekki hægt að miða við erlenda staðla í þessu samhengi. Aðstæður eru aðrar hér og veðurfar ólíkt því sem er annars staðar á Norðurlöndunum. Ég tel engan veginn forsvaranlegt að gera tilraunir með jafn brýnan öryggisþátt og götulýsing er hér í mesta skammdeginu.“


Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunni hefur viðmiðun götulýsingar í Garðabæ nú þegar verið breytt í fyrra horf. Því verður kveikt fyrr á götulýsingu í Garðabæ í dag og ljósin loga lengur fram eftir morgni á morgun en annars hefði verið.