8. des. 2009

Tók þátt í ráðstefnu um nýsköpun

Hofsstaðaskóli tók þátt í ráðstefnunni Innovation and Creativity in the hands of the young, þar sem fjallað var um nýsköpun og mikilvægi þess að virkja sköpunarkraftinn hjá unga fólkinu
  • Séð yfir Garðabæ

Hofsstaðaskóli tók þátt í ráðstefnunni Innovation and Creativity - in the hands of the young, þar sem fjallað var um nýsköpun og mikilvægi þess að virkja sköpunarkraftinn hjá unga fólkinu.

Sköpunarkraftur nemenda Hofsstaðaskóla hefur vakið athygli og það hversu vel hefur tekist að virkja þá til þátttöku í verkefnum tengdum nýsköpun. Þessi árangur er ástæða þess að skólanum bauðst þátttaka í ráðstefnunni.

 

Nemendur Hofsstaðaskóla hafa undanfarin ár tekið þátt í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda (NKG) með góðum árangri. Þrír nemendur komust síðast áfram í úrslit Nýsköpunarkeppninnar og hlaut einn af þeim, Ragnar Björgvin Tómasson, gullviðurkenningu fyrir hugmynd sína. Auk þess hlaut skólinn gullviðurkenningu fyrir fjölda innsendra hugmynda. Síðastliðin ár hefur einnig verið haldin sérstök lampakeppni í skólanum. Nemendur í smíði í 6. bekk taka þátt en í keppninni er unnið með 20 ljósa seríu, endurnýtanlegt efni og ýmsa verðlitla hluti sem falla til. Í skólanum býðst nemendum blandað efni en þeir mega einnig leita heima í geymslum hjá sér að því sem við köllum dót og drasl.


 

Ráðstefnan Innovation and Creativity in the hands of the young, fór fram dagana 2. – 4. desember á Grand Hotel Reykjavík en sérstakar vinnustofur í tengslum við ráðstefnuna voru í Norræna húsinu. Sædís Arndal smíðakennari fylgdi nemendum sem tóku  þátt í vinnustofu. Auk þess voru lampar sem búnir hafa verið til af nemendum skólans til sýnis í Norræna húsinu dagana 2. – 4. desember og í framhaldinu voru þeir fluttir á Grand Hotel Reykjavík þar sem þátttakendum á ráðstefnunni gafst færi á að skoða þá í skamman tíma.