Schoolovision tilnefnt til verðlauna
Schoolovision-verkefnið sem Flataskóli tók þátt í á vorönn sl. vetur er eitt af 109 verkefnum sem er komið í úrslit alþjóðlegu Global Junior Challege keppninnar
Schoolovision-verkefnið sem Flataskóli tók þátt í á vorönn sl. vetur er eitt af 109 verkefnum sem er komið í úrslit alþjóðlegu Global Junior Challege keppninnar. Þar er þeim verkefnum veitt verðlaun sem fela í sér nýjungar við notun upplýsingatækni í menntun og alþjóðlegri samvinnu.
Verkefninu var stýrt af Michael Purves frá Skotlandi en Kolbrún Svala Hjaltadóttir, kennsluráðgjafi í upplýsingatækni í Flataskóla var leiðbeinandi við verkefni þar. Aðeins einn skóli frá hverju landi má taka þátt í verkefninu og var Flataskóli því fulltrúi Íslands þar.
Flataskóli verður aftur fulltrúi Íslands á árinu 2010.
Lesa máum verkefnið á vef Flataskóla og á vefnum http://www.etwinning.blog.is/blog/etwinning/.