Tóku þátt í Norræna skólahlaupinu
Nemendur í Flataskóla og Hofsstaðaskóla tóku þátt í Norræna skólahlaupinu sem var haldið 9. september sl.
Nemendur í Flataskóla og Hofsstaðaskóla tóku þátt í Norræna skólahlaupinu sem var haldið 9. september sl. enda var veður eins og best verður á kosið til útihlaupa.
Hægt var að velja um þrjár vegalengdir: 2,5 km, 5 km og 10 km.
Á vef Hofsstaðaskóla kemur fram að þar tóku 389 nemendur þátt í hlaupinu og hlupu samtals 1445 km sem þýðir að þeir hlupu hringinn í kringum landið og rúmlega það.
Fréttir og myndir frá hlaupinu eru á vefjum skólanna:
www.hofsstaðaskóli.is og www.flataskoli.is