8. jan. 2014

Ragnar Gíslason lætur af störfum

Ragnar Gíslason, skólastjóri Garðaskóla, hefur vegna langvinnra veikinda beðist lausnar frá störfum sínum.
  • Séð yfir Garðabæ
Ragnar Gíslason, skólastjóri Garðaskóla, hefur vegna langvinnra veikinda beðist lausnar frá störfum sínum.

Fallist hefur verið á lausnarbeiðni Ragnars og mun staða skólastjóra Garðaskóla verða auglýst laus til umsóknar á komandi vorönn.

Ragnar starfaði sem almennur kennari í Garðaskóla frá 1989 til haustsins 1992 en tók þá við stöðu skólastjóra Foldaskóla í Reykjavík. Undanfarin 12 ár, frá ársbyrjun 2002, hefur Ragnar síðan starfað við Garðaskóla sem skólastjóri.