27. des. 2013

Tvær áramótabrennur í Garðabæ

Tvær brennur verða í Garðabæ um áramótin, við Gesthús á Álftanesi og við Sjávargrund
  • Séð yfir Garðabæ

Tvær brennur verða í Garðabæ að kvöldi gamlársdags:

Kveikt verður í brennunni á Álftanesi, nærri ströndinni norðan við Gesthús, kl. 20:30.

Brennan er í umsjón Skátafélagsins Svana.

Kveikt verður í brennunni við Sjávargrund kl. 21.00.

Brennan er í umsjón Stjörnunnar.

 

Gleðilegt nýtt ár!