16. mar. 2009

Atvinnulausir fá frí sundkort

Garðbæingar sem eru án atvinnu og njóta að a.m.k. 50% bótaréttar úr atvinnuleysistryggingasjóði eiga rétt á fríu aðgangskort í sundlaug og líkamsrækt í Ásgarði skv. samþykkt bæjarráðs.
  • Séð yfir Garðabæ

Garðbæingar sem eru án atvinnu og njóta að a.m.k. 50% bótaréttar úr atvinnuleysistryggingasjóði eiga rétt á fríu aðgangskorti í sundlaug og líkamsrækt í Ásgarði skv. samþykkt bæjarráðs.

Kortin eru afhent í þjónustuveri Garðabæjar á Garðatorgi gegn framvísun persónuskilríkja og nýjasta greiðsluseðils atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Kortin gilda í sex mánuði í senn.