18. feb. 2009

Glæsilegt þorrablót 6. bekkjar

Árlegt þorrablót 6. bekkinga í Hofsstaðaskóla var haldið fimmtudaginn 12. febrúar. Þá buðu nemendur foreldrum sínum til glæsilegrar þorraveislu.
  • Séð yfir Garðabæ

Árlegt þorrablót 6. bekkinga í Hofsstaðaskóla var haldið fimmtudaginn 12. febrúar. Þá buðu nemendur foreldrum sínum til glæsilegrar þorraveislu. Undirbúningur fyrir veisluna stóð yfir í rúma viku. Mikið var lagt í vegleg og flott skemmtiatriði, fallega framreiddan mat og þægilegt umhverfi.

Gleðin skein úr hverju andliti þegar stundin var runnin upp. Starfsfólk, foreldrar og nemendur áttu ánægjulega stund saman og nutu góðra veitinga. Nemendur buðu upp á fjölbreytt skemmtiatriði sem samanstóðu af leikritum, dans og söng. Hljómsveit skipuð nemendum úr árganginum spilaði undir fjöldasöng ásamt Soffíu tónmenntakennara og Jóhanni kennara úr Tónlistarskóla Garðabæjar.

Þorramatinn undirbjuggu nemendur ásamt Áslaugu heimilisfræðikennara. Kvöldinu lauk síðan með dansi þar sem íþróttakennararnir Hreinn og Ragga Dís stjórnuðu nemendum og foreldrum í dönsum nemendur hafa lært í íþróttatímum.

Fleiri myndir frá þorrablótinu eru á vef Hofsstaðaskóla.