16. feb. 2009

Bikarmeistarar karla í körfu

Stjarnan er bikarmeistari karla í körfuknattleik eftir að hafa sigrað KR með 78 stigum gegn 76 í æsispennandi úrslitaleik á sunnudaginn.
  • Séð yfir Garðabæ

Stjarnan er bikarmeistari karla í körfuknattleik eftir að hafa sigrað KR með 78 stigum gegn 76 í æsispennandi úrslitaleik á sunnudaginn. Stjörnumenn tryggðu sér þar með sinn fyrsta bikarmeistaratitil í körfubolta. Leikurinn var hnífjafn frá upphafi til enda en Stjörnumenn fögnuðu verðskulduðum sigri eftir að hafa sýnt frábæran leik og verið í forystu mestan hluta leiktímans.

Áður en leikurinn hófst bauð körfuknattleiksdeildin til fjölskylduhátiðar í Ásgarði og þaðan var voru farnar sætaferðir á leikinn. Fjölmargir Garðbæingar tóku boði deildarinnar og studdu sína menn dyggilega í leiknum.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar sendir körfuknattleiksdeildinni hamingjuóskir með titilinn.

Ýtarleg umfjöllun um leikinn í máli og myndum er á vefnum karfan.is.