18. des. 2013

Gleði í jólaskóginum í Smalaholti

Skógræktarfélag Garðabæjar efndi til opins jólaskógar í Smalaholti laugardaginn 14. desember. Mikil stemmning og gleði var í skóginum þar sem kyngdi niður jólasnjó
  • Séð yfir Garðabæ

Skógræktarfélag Garðabæjar efndi til opins jólaskógar í Smalaholti laugardaginn 14. desember. Mikil stemmning og gleði var í skóginum þar sem kyngdi niður jólasnjó. Krakkarnir lögðu mikið á sig við að saga tréð sem fjölskyldan valdi, auðvitað með samþykki þeirra. Þetta var góð fjölskyldustund í skóginum með mömmu og pabba, jafnvel afa og ömmu.

Að loknu erfiðinu við að þramma í snjónum um skóginn, finna rétta tréð í stofuna heima, fella það og draga út úr skóginum upp á bílaplan var gott að fá sér heitt kakó í furulundinum, þar sem fullorðna fólkið gat spjallað saman, en börnin leikið sér áfram í snjónum. 

Opinn jólaskógur á vegum Skógræktarfélags Garðabæjar er aðeins í einn laugardag fyrir jól, en þá gefst íbúum bæjarins kostur á að koma í skóginn í Smalaholti og upplifa skemmtilega jólastemmningu með því að kaupa jólatré sem vaxið hefur í heimabyggð.

Þetta er fjórða árið sem skógurinn er opnaður fyrir jólatréssölu, enda komin tími á að grisja skóginn sem hefur vaxið þarna upp frá árinu 1989 þegar gróðursetningar hófust í Smalaholti. Skógræktarfélagar fagna því að geta gefið fjölskyldum í bænum þetta tækifæri innan bæjarmarkanna.