Dagur leikskólans 6. febrúar
Allir leikskólarnir í Garðabæ verða með opið hús á degi leikskólans 6. febrúar
Dagur leikskólans er 6. febrúar nk. og þá verður opið hús í öllum leikskólum í Garðabæ.
Aðstandendur leikskólabarna og aðrir Garðbæingar eru hvattir til að nýta tækifærið, líta inn í næsta leikskóla og fylgjast með hefðbundnu leikskólastarfi.
Leikskólinn er mikilvægt upphafi að menntun hvers barns og gildur þáttur í lífi þess og því skiptir miklu máli hvernig staðið er að starfi þessa skólastigs.
Allir eru velkomnir í heimsókn á leikskóla í Garðabæ á degi leikskólanna, föstudaginn 6. febrúar nk.
Bæklingur um dag leikskólans.