Bílastæði á Garðatorgi
Vegna framkvæmda við nýjan miðbæ er viðskiptamönnum bent á fjölmörg bílastæði við Garðatorg
Skóflustunga að nýju Garðatorgi var tekin þann 11. september sl. Vegna framkvæmda við torgið er íbúum og viðskiptamönnum bent á að fjölmörg bílastæði eru einnig vestan og austan megin við Garðatorg. Ökumenn eru einnig beðnir um að virða sérmerkt bílastæði fyrir fatlaða.
Kort af bílastæðum við Garðatorg (pdf-skjal)
Nýtt Garðatorg er annar áfangi í uppbyggingu á miðbæjarsvæði Garðabæjar og er það fasteignaþróunarfélagið Klasi hf. sem vinnur að uppbyggingunni í samvinnu við Garðabæ. Við torgið verða verslanir, þjónustufyrirtæki, menningarlíf og íbúðir. Framkvæmdum við torgið lýkur á árinu 2010. Sjá nánar í frétt hér á heimasíðunni.