2. des. 2013

Rusladallar teknir niður fram yfir áramót

Byrjað verður að taka niður rusladalla 9. desember. Gert verður við þá, þeir málaðir og síðan settir upp aftur eftir þrettándann.
  • Séð yfir Garðabæ
Byrjað verður að taka niður rusladalla 9. desember. Gert verður við þá, þeir málaðir og síðan settir upp aftur eftir þrettándann. Er þetta gert vegna tíðra skemmdarverka á rusladöllum í kringum áramótin. Kostnaður vegna skemmda á þeim nam tveimur milljónum króna í fyrra.

Forstöðumaður áhaldahúss