Strætókort á straeto.is
Nú er hægt að sækja um námsmannakort í strætó á vef Strætó, www.straeto.is.
Nú er hægt að sækja um námsmannakort í strætó á vef Strætó, www.straeto.is. Námsmenn í framhalds- og háskólanámi sem búa í Garðabæ skrá sig inn á vef Strætó, senda inn upplýsingar um sig ásamt mynd og geta eftir það sótt kortin í þjónustuver Garðabæjar.
Gera má ráð fyrir að kortin verði tilbúin í þjónustuverinu á föstudegi, í vikunni eftir að þau eru pöntuð á vefnum.
Námsmannakortin kosta 3.100 krónur.