13. ágú. 2008

Viltu taka þátt í Útsvari?

Senn fer í loftið spurningaþáttur Sjónvarpsins Útsvar.
  • Séð yfir Garðabæ

Ertu fróð/ur, býrð í Garðabæ og hefur gaman af spurningakeppnum eða veistu um einhvern Garðbæing sem þessi lýsing á við? Ef svo er, láttu okkur vita. Garðabær leitar að fólki til að taka þátt í Útsvari spurningaþætti Sjónvarpsins.

Útsvar er spurningaþáttur sveitafélaganna sem var á dagskrá Sjónvarpsins síðasta vetur. Lið Garðabæjar stóð sig með stakri prýði og komst í undanúrslit.

Allar ábendingar um frambærilega væntanlega þátttakendur skal senda á ingunnbi@gardabaer.is