Sumarlestrinum að ljúka
Sumarlestri Bókasafns Garðabæjar fer að ljúka. Starfsfólk Bókasafnsins minnir börnin sem tóku þátt á að nauðsynlegt er að skila lestrardagbókinni eða fjölda lesinna blaðsíðna til bókasafnsins í síðasta lagi miðvikudaginn 13. ágúst.

Þeir sem skila inn fá viðurkenningarskjal og verða með í happdrættispotti sem dregið verður úr á lokahátíðinni föstudaginn 15. ágúst, kl. 11:00. Þá verður þeim sem lásu mest í sínum árgangi afhent bókaverðlaun.
Vonandi sjá sem flestir þátttakendur sumarlestursins sér fært að mæta á lokahátíðina.