Heitt í Garðabæ
Það var hiti í Garðbæingum sem öðrum landsmönnum miðvikudaginn 30. júlí 2008
Það var hiti í Garðbæingum sem öðrum landsmönnum miðvikudaginn 30. júlí 2008. Hitamet voru slegin víða um land.
Í Garðabæ fór hitamælirinn á Garðatorgi upp í 27 gráður síðdegis og hlýtur það að teljast til tíðinda. Hæsti hiti sem mælst hefur á veðurstöð í Garðabæ er 26,3 gráður árið 2004 en þá tölu sýndi veðurstöðin við Vífilsstaðaveg sem nú hefur verið fjarlægð.