Hlaupið í rigningunni
Um 3.500 konur tóku þátt í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ í Garðabæ á laugardaginn þrátt fyrir ausandi rigningu.
Um 3.500 konur tóku þátt í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ í Garðabæ laugardaginn 7. júní og hlupu ýmist 2, 5 eða 10 kílómetra í ausandi rigningu. Hlaupið tókst afar vel og létu þátttakendur rigninguna ekki koma í veg fyrir góða stemmningu.
Hlaupið á 110 stöðum
Alls var hlaupið á um 110 stöðum í ár, þar af 90 stöðum á Íslandi. Sem fyrr var fjölmennasta hlaupið í Garðabæ en alls er talið að um 15.000 konur hafi tekið þátt í hlaupinu.
Myndir á vef Sjóvá
Myndina tók Matthías Ægisson áhugaljósmyndari. Myndir hans og fjölmargar aðrar myndir úr Kvennhlaupinu 2008 eru á vef Sjóvá.