21. des. 2007

Vatn frá Vatnsveitu Kópavogs hleypt á deifikerfi Vatnsveitu Garðabæjar

Vatn frá Vatnsveitu Kópavogs hleypt á deifikerfi Vatnsveitu Garðabæjar
  • Séð yfir Garðabæ

Vatni frá Vatnsveitu Kópavogs var í dag, föstudaginn 21. desember 2007, hleypt á allt dreifikerfi Vatnsveitu Garðabæjar. Fyrir fáum vikum var vatni frá VK hleypt á Kauptún og síðar á Molduhraun.

Vatnsveita Garðabæjar mun í framtíðinni kaupa vatn af VK samkvæmt 40 ára samningi um kaup á köldu vatni sem Garðabær og Kópavogsbær gerðu á síðastliðnu ári.

Lögð hefur verið 400 mm vatnslögn frá Kópavogi að Reykjanesbraut við Vífilsstaðalæk og er þar tengi- og stjórnbrunnur. Þaðan dreifist vatn til nýrra svæða Urriðaholts og niður í bæinn.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, og Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, hleyptu vatni á dreifikerfið í stjórnbrunninum við Vífilsstaðalæk í dag og dreyptu á vatninu.

"Ég óska Garðbæingum til hamingju með þennan áfanga," segir Gunnar I. Birgisson. "Þetta verkefni treystir bönd og samvinnu bæjarfélaganna."

"Þetta er stór dagur fyrir okkur Garðbæinga" segir Gunnar Einarsson." Maður horfir með trega til gömlu vatnsveitunnar sem hefur þjónað okkur svo vel í gegnum tíðina, en um leið er maður afskaplega ánægður að fá tryggt vatn frá Vatnsveitu Kópavogs til framtíðar þar sem okkar vatnsveita var víkjandi".

 

 

 

 

 

 

Mynd: Rúnar Sigurðsson

Gunnar Einarsson og Gunnar I. Birgisson dreypa á vatninu

Árið 1963 var lögð vatnslögn frá Dýjakrókum austan Vífilsstaðavatns og niður í þéttbýlið sem var að myndast í Garðahreppi. Í fyrstu var vatnið sjálfrennandi úr lindunum en árið 1978 var sett dæla í borholu í Dýjakrókum og dældi hún vatni til bæjarins. Síðustu árin hafa tvær borholur í Dýjakrókum séð Garðbæingum og Álftnesingum fyrir neysluvatni og hefur ársnotkunin undanfarin ár verið um 1200 þúsund tonn, þar af hafa um 200 þúsund tonn farið á Álftanes.

Nú verður vatnsbólum Garðbæinga í Dýjakrókum lokað eftir rúmlega 40 ára notkun þar sem vatnsvernd vegna neysluvatnsöflunar verður aflétt af svæðinu. Rétt er að benda á að í stað þeirrar vatnsverndar sem svæðið hefur notið hefur bæjarstjórn Garðabæjar samþykkt tillögu um friðlýsingu Vífilsstaðavatns og nágrennis þess.

Nánari upplýsingar veitir Gústaf Jónsson vatnsveitustjóri Vatnsveitu Garðabæjar í síma 565 8532