7. nóv. 2007

Hofstaðaskóli flaggar Grænfánanum

  • Séð yfir Garðabæ

Hofstaðaskóli hefur náð að uppfylla nauðsynleg skilyrði til að fá að flagga Grænfánanum, fyrstur skóla í Garðabæ. Grænfáninn er alþjóðlegt merki um gott umhverfisstarf og menntun í skólnum. Hofstaðaskóli hefur með þessu náð langþráðu markmiði sem um 20.000 skólar í um 40 löndum keppa um, en um 7000 skólar hafa náð.

Grænfáninn verður afhentur Hofstaðaskóla við hátíðlega athöfn á degi íslenskrar tungu 16. nóvember 2007.

Gert er ráð fyrir að Grænfáninn blakti alla daga við skólann auk fána skólans og þjóðfánans.