Léttur og leikandi jazz í sal Tónlistarskólans
Kennarar úr Tónlistarskóla Garðabæjar, sem allir eru á meðal fremstu jazztónlistarmanna landsins, bjóða Garðbæingum til tónleika, þriðjudagskvöldið 11. október kl. 20. Þeir sem fram koma eru: Sunna Gunnlaugsdóttir, Ómar Guðjónsson, Jón Óskar Jónsson, Þorgrímur Jónsson, Jakob Hagedorn-Olsen og Gunnar Hilmarsson.
Kennarar úr Tónlistarskóla Garðabæjar, sem allir eru á meðal fremstu jazztónlistarmanna landsins, bjóða Garðbæingum til tónleika, þriðjudagskvöldið 11. október kl. 20.
Tónleikarnir verða í sal Tónlistarskólans við Kirkjulund.
Þeir sem fram koma eru: Sunna Gunnlaugsdóttir, Ómar Guðjónsson, Jón Óskar Jónsson, Þorgrímur Jónsson, Jakob Hagedorn-Olsen og Gunnar Hilmarsson.
Tónleikarnir eru styrktir af menningar- og safnanefnd Garðabæjar.
Allir hjartanlega velkomnir - ókeypis aðgangur.
Tónleikarnir eru þeir fyrstu í tónleikaröð kennara veturinn 2016-2017. Næstu tónleikar verða haldnir þriðjudagskvöldið 29. nóvember nk. en þá verða strengja- og píanótónleikar með rússneskri og austur-evrópskri tónlist.