Leikskólastjórar kynntu sér stefnu og starf í leikskólaheimsóknum
Leikskólastjórar kynntu sér stefnu og starf í leikskólaheimsóknum
Leikskólastjórar í Garðabæ fóru ásamt leikskólafulltrúa og forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs í heimsóknir í leikskóla í síðustu viku.
Heimsóttir voru leikskólarnir Berg á Kjalanesi sem er umhverfisvænn leikskóli og leikskólinn Rauðhóll í Norðlingaholti sem tók til starfa í vor. Leikskólinn í Norðlingaholti er hannaður af Manfred Vilhjálmsyni sem hannaði einnig Garðaskóla.
Leikskólastjórarnir fengu áhugaverðar kynningar á stefnu leikskólana og skoðuðu húsakynni þeirra og starfsemi.
Frá kynnisferðinni