Frítt í Sundlaug Garðabæjar 9. júní
Frítt verður í sundlaug Garðabæjar laugardaginn 9. júní..
Garðabær, Sunddeild Stjörnunnar, Sundsamband Íslands og Síminn bjóða Garðbæingum í sund þennan dag en hann er liður í átaki sem miðar að því að auka áhuga almennings á sundíþróttinni.
Sunddeild Stjörnunnar verður með dagskrá í lauginni kl. 13-17 og verður því skert sundaðstaða fyrir almenning á því tímabili.
Ýmislegt verður í boði ss. verðlaun fyrir leiki, sundkennsla og ýmislegt fleira.
Léttar veitingar.
Sjá nánar á http://www.siminn.is/sund/