17. okt. 2013

Fékk Grænfánann í þriðja sinn

Hofsstaðaskóli fékk Grænfánann afhentan í þriðja sinn 10. október sl. Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning fyrir umhverfisstarf og stefnu í umhverfismálum.
  • Séð yfir Garðabæ
Hofsstaðaskóli fékk Grænfánann afhentan í þriðja sinn 10. október sl. Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning fyrir umhverfisstarf og stefnu í umhverfismálum. 

Fulltrúi Landverndar afhenti nemendum í umhverfisnefnd skólans fánann að viðstöddum nemendum í 5. bekk og öðrum góðum gestum. Afhendingin fór fram á útikennslusvæði leik- og grunnskóla við Bæjarbraut. Við athöfnina söng kór Hofsstaðaskóla þrjú lög undir stjórn Unnar Þorgeirsdóttur, þrír nemendur fluttu frumsamin ljóð um haustið og Ágústa Líndal spilaði á horn. Að athöfn lokinni var gestunum boðið uppá heitt kakó og kleinur. 

Grænfáninn er viðurkenningin sem veitt er þeim skólum sem taka þátt í verkefninu Skólar á grænni grein (Eco-Schools) sem Landvernd stýrir með stuðningi frá stjórnvöldum. Þátttökuskólar þurfa að hafa stigið sjö skilgreind skref í umhverfismálum til að geta sótt um Grænfánann sem er alla jafna veittur til tveggja ára í senn. Sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi.

 Nemendur og starfsmenn Hofsstaðaskóla eru afar stoltir af fánanum sínum og því mikilvæga starfi sem hann stendur fyrir.