12. jan. 2007

Skíðagöngubraut á golfvelli GKG - opin meðan færi leyfir

  • Séð yfir Garðabæ


Verið er að vinna að gerð skíðagöngubrautar á golfvelli GKG. Brautinni verður haldið við alla helgina framundan og svo lengi sem snjór helst.

Nú er um að gera að draga fram gönguskíðin. Öllum er velkomið að mæta og notfæra sér brautina á meðan færi gefst.