12. okt. 2006

IKEA opnar stærstu verslun landsins í Garðabæ

IKEA opnar stærstu verslun landsins í Garðabæ
  • Séð yfir Garðabæ


Ný verslun IKEA í Kauptúninu í Garðabæ var opnuð með í morgun, 12. október. Verslunin sem er yfir 20.000 fm að flatarmáli er stærsta verslun á Íslandi að sögn forráðamanna IKEA.

Verslunin er sú fyrsta sem opnar í Kauptúninu í Garðabæ en það er framtíðarverslunarsvæði sem er staðsett á milli Reykjanesbrautar og Urriðavatns. Þar verður samkvæmt skipulagi þyrping stórra verslana.

Fjöldi fólks var viðstaddur opnun IKEA í morgun, m.a. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri sem bauð fyrirtækið og starfsmenn þess velkomið í Garðabæ.

Verslunin var opnuð með sænskum hætti með því að trjádrumbur var sagaður í sundur.