3. okt. 2013

Styrktu hjálparstarf Rauða krossins

Þessir duglegu krakkar úr Garðabæ styrktu hjálparstarf Rauða krossins í Sýrlandi með ágóða af tombólu sem þau héldu í sumar í Garðabæ.
  • Séð yfir Garðabæ

Þessir duglegu krakkar úr Garðabæ sem heita Hafdís Hanna, Soffía Petra, Lilja, Jóhann, Guðrún og Ólöf Aníta styrktu hjálparstarf Rauða krossins í Sýrlandi með ágóða af tombólu sem þau héldu í sumar í Garðabæ.

Krakkarnir söfnuðu um sautján þúsund krónum með framtaki sínu sem koma í góðar þarfir í hjálparstarfinu.

Rauði krossinn í Garðabæ þakkar þeim kærlega fyrir stuðninginn.