23. sep. 2013

Norrænar bókmenntir í spjaldtölvum

Skólarnir í Garðabæ tileinka sér notkun spjaldtölva í skólastarfi í auknum mæli.
  • Séð yfir Garðabæ

Skólarnir í Garðabæ tileinka sér notkun spjaldtölva í skólastarfi í auknum mæli.

Tveir kennarar frá Hofsstaðaskóla og Flataskóla fengu nýlega tækifæri til að sækja vinnustofu þar sem þær kynntu sér þetta viðfangsefni. Landsskrifstofa eTwinning bauð þeim Elínu Ásu Þorsteinsdóttur og Ester Jónsdóttur á vinnustofu til Danmerkur í ágúst sl. Aðalmarkmiðið var að skoða hvernig hægt væri að vinna með spjaldtölvur, norrænar bókmenntir og sögur en einnig að koma á auknu samstarfi á milli nemenda og kennara norrænu landanna. Þetta var í fjórða sinn sem svona vinnustofa er haldin á vegum eTwinningsamtakanna á Norðurlöndum.

Viðfangsefnið vinnustofunnar var að stofna samskiptaverkefni sem vinna á að í vetur, þar sem notaðar verða spjaldtölvur. Markhópurinn er nemendur á aldrinum 9 til 12 ára. Þátttakendur voru 30 kennarar sem komu frá öllum Norðurlöndunum nema Færeyjum og Grænlandi. Þeir áttu hver um sig að koma með þrjár bækur með sér sem hægt væri að nota í verkefninu. Einnig var lögð áhersla á að nemendur notuðu eigið tungumál til samskipta eins og hægt væri, þannig að allir læsu bækurnar á móðurmáli sínu og fengju að heyra/lesa á tungumál hinna. Þetta var þriggja daga vinnustofa en einum degi var varið í skólaheimsókn í Alþjóðaskóla í Billund og heimsókn í Lególand þar sem kennarar unnu vettvangsverkefni.

Þær stöllur hafa nú þegar sagt kennurum í skólunum sínum frá vinnustofunni. Þá var einnig ákveðið að vinna með Norðmönnum að sameiginlegu verkefni seinna í vetur á vegum eTwinning og nota til þess spjaldtölvur.